Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fer til Washington DC í Bandaríkjunum í dag til að funda um tvíhliða samstarf ríkjanna og stöðu alþjóðamála.Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að Þorgerður komi til með að funda með Christopher Landau varautanríkisráðherra Bandaríkjanna í utanríkisráðuneytinu, Elbridge Colby aðstoðarvarnarmálaráðherra í varnarmálaráðuneytinu, og Jeff Goettman, varautanríkisviðskiptafulltrúa Bandaríkjanna.Þá mun hún hitta þingmenn öldungadeildar Bandaríkjaþings.RÚV / Ragnar Visage