Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni gefur lítið fyrir þær skýringar Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa, sem kynntu að þau hefðu bæði gengið til liðs við Miðflokkinn, að ágreiningur hafi verið um borgarlínuna. Hildur segir það augljósan fyrirslátt sem dæmir sig sjálfur.