Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óhugnanlegar lýsingar á Edition-málinu í farbannsúrskurði

Franska konan, sem er grunuð um að hafa stungið bæði eiginmann sinn og dóttur á Edition-hótelinu síðasta sumar, verður í farbanni til 30. mars. Héraðsdómur Reykjavíkur telur að enn sé margt á huldu um hvað gerðist. Konan hefur breytt framburði sínum um hvað raunverulega gerðist.Edition-málið er fordæmalaust. Rannsókn lögreglu hefur teygt sig til Írlands, Frakklands og Nýju Kaledóníu, eyjaklasa í Kyrrahafinu, en þaðan er maðurinn ættaður. Fjölskyldan var auðug, skildi eftir sig erfðaskrá upp á milljarða en harðar deilur höfðu staðið um þann pening hjá fjölskyldu mannsins. Þau voru ekki á neinum samfélagsmiðlum, afar litlar upplýsingar er að finna um þau á leitarvélum og lögregla fann varla nein rafræn gögn á farsímum þeirra. Þau komu hingað í frí, pöntuðu herbergi á einu dýrasta hóteli Reyk
Óhugnanlegar lýsingar á Edition-málinu í farbannsúrskurði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta