Markmiðadrifin hugsun getur haft mikil áhrif á það hvernig fólk meðtekur og túlkar upplýsingar um mikilvæg málefni sem oft eru fyrirferðarmikil í samfélagsumræðunni. Þetta segir Hulda Þórisdóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.„Við teljum okkur vera að hlusta á allt og vega allt og meta en rannsóknir hafa sýnt óyggjandi að við einfaldlega bara meðtökum ekki ákveðnar upplýsingar. Ef við svo einhvern veginn heyrum þær þá munum við þær ekki og bara skiljum þær með allt öðrum hætti heldur en kannski fólk sem er hlutlaust eða á annarri skoðun,“ segir hún.Óljós markmið sem til dæmis snúa að sjálfsmynd fólks eða hvort tiltekinn stjórnmálaflokkur sé betri eða verri en hinir geti því haft áhrif á vinnslu upplýsinga.„Eftir því sem fólk er greindara eða jafnvel með meiri þekkingu