Umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið heldur áfram í dag. Miðað við mælendaskrána verður að teljast hæpið að umræðan klárist í dag.Það þýðir að ekki verður hægt að klára umræðuna fyrr en í næstu viku því á morgun og fimmtudaginn eru nefndardagar og þar af leiðandi engir þingfundir. Tuttugu þingmenn eru enn á mælendaskrá í fyrri umferð þar sem þingmenn geta talað í tíu mínútur. Í síðari umferð fá þingmenn að tala í fimm mínútur og eru þá andsvör ekki tekin með.Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa verið duglegir við að halda fjarveru forsætisráðherra og barna- og menntamálaráðherra á lofti í umræðunni. Sú síðarnefnda, Inga Sæland, er stödd erlendis í opinberum erindagjörðum en fyrir utan fyrirspurnartíma í gæ