Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rekja stórbruna til hleðslutækis fyrir lyftara

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á eldsvoða í Gufunesi í Reykjavík í janúar. Þá fuðraði gömul skemma upp og leikmunir og annað efni í geymslu eyðilagðist.Lögregla fann engin merki um að kveikt hefði verið í eða að gáleysislega hefði verið farið með eldhvetjandi efni. Líklegast þykir að eldurinn hafi kviknað út frá hleðslutæki fyrir lyftara. Tveir lyftarar voru í sambandi við hana og í hleðslu þegar eldurinn kviknaði.Mikið tjón varð í eldsvoðanum. Kvikmyndagerðarfyrirtækið True North leigði skemmuna af Reykjavíkurborg. Þar geymdi fyrirtækið eigin muni auk þess sem fleiri fyrirtæki og einstaklingar geymdu þar muni.Meðal þess sem eyðilagðist voru leikmunir úr þáttaröðunum True Detective, Felix og Klöru, Dönsku konunni og Vigdísi. Hernámssetrið var einnig með muni þarn
Rekja stórbruna til hleðslutækis fyrir lyftara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta