Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að hækkandi verð á hráolíu á heimsvísu komi til með að hafa efnahagsleg áhrif hér á landi og þá meðal annars á verðbólgu. Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað mikið eftir að árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hófst.„Ísland sem hagkerfi er háð orku, mjög háð orku, stórir atvinnuvegir hjá okkur byggja á því. Við erum með mikla flutninga vegna legu okkar þannig að það er líklegt að þetta muni hafa töluverð áhrif hjá okkur,“ segir hann.Daði telur þó að innflutt verðbólga sem hlýst af hækkandi olíuverði hafi lítið með hagstjórn á Íslandi að gera. „En hún gerir verkefnið okkar ekki auðveldara,“ segir hann.Aðspurður hvort hann telji olíufélög hérlendis hafa verið of fljót að grípa til verðhækkana segir hann mögulegt að það bendi t