Héraðsdómur Reykjaness dæmdi erlendan karlmann í dag til sex mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnasmygl. Maðurinn var staðinn að smyglinu þegar hann kom til Íslands með flugi frá Portúgal. Hann var með 386 grömm af kókaíni á sér.Maðurinn játaði sök þegar ákæra gegn honum var þingfest. Hann sagðist hafa tekið að sér að flytja fíkniefnin hingað til lands gegn greiðslu. Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli 6. febrúar.RÚV / Ragnar Visage