Skólastjóri í Víðisstaðaskóla í Hafnarfirði hverfur til annarra starfa fyrir bæinn eftir að tæplega fjögurra milljón króna úttekt var gerð á stjórnunarháttum í skólanum í kjölfar alvarlegra ábendinga frá starfsfólki í nóvember.Þetta kemuri fram í skriflegu svari frá samskiptastjóra Hafnarfjarðar við fyrirspurn fréttastofu.Vísir greindi frá því í nóvember að Dagný Kristinsdóttir skólastjóri hefði verið send í leyfi á meðan úttekt yrði gerð á stjórnunarháttum í Víðisstaðaskóla. Í frétt Vísis er rifjað upp þegar 22 starfsmenn í Hvassaleitisskóla í Reykjavík skrifuðu undir vantraustsyfirlýsingu á hendur Dagnýju, þáverandi skólastjóra, í nóvember 2022. Dagný sagði upp störfum Hvassaleitisskóla skömmu síðar.Í svari við fyrirspurn fréttastofu vegna málsins segir að úttekt Lífs og sálar á stjórnen