„Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni,“ segir einkaþjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir um fyrrverandi kærasta sinn, Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleina, sem sagður er hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum.