Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögregla hefur beitt rafbyssum ellefu sinnum

Á fyrstu sextán mánuðunum eftir að lögregla fékk heimild til að nota rafbyssur beittu lögreglumenn slíkum tækjum ellefu sinnum gegn mönnum sem þeir voru að handtaka. Þar að auki drógu lögreglumenn slík tæki úr slíðum sínum eða ógnuðu meintum brotamanni með þeim 100 sinnum.Þetta kemur fram í nýrri ársfjórðungsskýrslu ríkislögreglustjóra. Mest var um að lögreglumenn drægju rafbyssurnar úr slíðrum sínum á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs, öðrum heila ársfjórðungnum eftir að notkun þeirra var leyfð. Mest var um að lögreglumenn beittu þeim á haustmánuðum, fjórum sinnum á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.Lögregla fékk heimild til beitingar tækjanna í september 2024.RÚV / Fréttagrafík/Kristrún Eyjólfsdóttir
Lögregla hefur beitt rafbyssum ellefu sinnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta