Niðurrif fyrstu ónýtu íbúðarhúsanna hófst í Grindavík í gærmorgun. Verktakinn segir sárt að þurfa að rífa húsin en það þurfi til að hægt verði að byggja upp bæinn og fylla í sprungur undir þeim. EFTIRSJÁ AF HÚSINU Tugir íbúðarhúsa í Grindavík hafa verið metin gjörónýt. Mánagata 21 er eitt af þeim fyrstu sem er rifið. Þar bjó Ingibjörg Reynisdóttir.„Ég var fyrir löngu búin að segja að ég yrði mjög fegin að þetta hús yrði rifið en svo þegar kemur að því þá er maður ekki tilbúinn,“ segir hún.„Þó að þetta sé dauður hlutur þá er bara allt of mikið af minningum þarna, allt of mikið - allt of mörg handtök og eftirsjá. Og líka bara í samfélaginu hérna, ekki bara í húsinu,“ bætir hún við.Ingibjörg keypti húsið fyrir þrjátíu og fimm árum og bjó í því þar til Grindavík var rýmd í nóvember 2023.„Ég