Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fá að draga sjöundadagsaðventista og Eden fyrir dóm vegna malarnáms

Deila um hvernig staðið var að samningi milli Kirkju sjöunda dags aðventista og malarnámsfyrirtækisins Eden Mining um malarnám í Lambafelli og Litla-Sandfelli kemur til kasta Héraðsdóms Reykjavíkur. Þetta varð ljóst þegar Landsréttur fyrirskipaði dómstólnum að taka málaferli vegna samningsins til efnislegrar meðferðar þrátt fyrir að dómstóllinn hefði áður vísað stefnunni frá dómi.Hópur 21 meðlims kirkjunnar höfðaði mál gegn trúfélagi sínu og malarnámsfyrirtæki sem er í eigu tveggja meðlima þess. Samningurinn kveður á um að fyrirtækið, Eden Mining, megi stunda malarnám á landi í eigu Kirkju sjöunda dags aðventista í Ölfusi. Jarðefni þaðan á að flytja úr landi, samkvæmt samningi við íslenskt dótturfélag þýska stórfyrirtækisins Heidelberg Materials.Sjöundadagsaðventistarnir sem höfðuðu málið
Fá að draga sjöundadagsaðventista og Eden fyrir dóm vegna malarnáms

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta