Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fleiri konur mæta í krabbameinsskimun en áður

Konum sem mæta í skimun fyrir brjósta- og leghálskrabbameini hefur fjölgað mikið síðustu ár. Í fyrra mættu 65 prósent kvenna í skimun fyrir brjóstakrabbameini og hafði hlutfallið þá hækkað um níu prósentustig frá 2023. Á sama árabili fjölgaði konum sem létu skima sig fyrir leghálskrabbameini úr 61 prósenti í 70 prósent. Samhæfingarstöð krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins stefnir að því að minnst 75 prósent kvenna taki þátt í slíkum könnunum ár hvert.Tæki og tól til krabbameinsskimunar.RÚV / Guðmundur Bergkvist
Fleiri konur mæta í krabbameinsskimun en áður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta