Síðustu sex árin hefur íslenska krónan oftar en ekki sveiflast minna en ýmsir aðrir gjaldmiðlar, þar á meðal bandarískur dollar, Evran og breska pundið. Íslenska krónan hefur því ekki verið stór áhrifavaldur í því verðbólguástandi sem Íslendingar fást við í dag heldur sinnt sínu hlutverki vel sem fljótandi gjaldmiðill sem mýkir hagsveiflur.