Meirihluti félagsmanna Samtaka iðnaðarins, eða 57 prósent, er andvígur því að Ísland gangi í Evrópusambandið. 26 prósent eru hlynnt aðild, samkvæmt nýrri könnun. Formaður samtakanna segir enga einhlíta skýringu vera á því.Outcome framkvæmdi könnunina meðal stjórnenda íslenskra iðnfyrirtækja í Samtökum iðnaðarins í febrúar og mars. Könnunin var einnig gerð á sama tíma 2024 og á síðasta ári.Andstaðan hefur farið vaxandi síðustu ár. 22 prósent voru mjög andvíg aðild 2024 og 36 prósent á síðasta ári. Á sama tíma lækkaði hlutfall þeirra sem eru fylgjandi aðild. 17 prósent voru mjög fylgjandi aðild 2024 og 11 prósent á síðasta ári. Tíu prósent eru mjög fylgjandi aðild núna.Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir enga einhlíta skýringu vera á þessu.„Það sem mann grunar að sé að gerast er b