Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lego hefur aldrei hagnast jafn mikið

Danski leikfangaframleiðandinn Lego hagnaðist um 16,7 milljarða danskra króna, andvirði 325 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Rekstur fyrirtækisins hefur aldrei gengið jafn vel. Tekjur þess jukust um tólf prósent og hagnaðurinn hefur aldrei verið meiri. Niels Christiansen, forstjóri Lego, sagði að fyrirtækið væri ekki ónæmt fyrir óstöðugleika í hagkerfi heimsins en að fyrirtækið hefði meðbyr á mörkuðum. Hann kvaðst sjá fyrir sér að fyrirtækið gæti haldið áfram að stækka.Ný verksmiðja Lego var opnuð í Ungverjalandi í fyrra.EPA / Zsolt Czegledi
Lego hefur aldrei hagnast jafn mikið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta