Umræðu um þingsályktunartillögu stjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandbið verður haldið áfram á Alþingi í dag. Þingfundur hefst klukkan hálft tvö. Tveir liðir eru á dagskrá, fyrst störf þingsins og svo framhald umræðunnar um þingsályktunartillöguna. Níu ræður voru fluttar í gær og andsvör við þeim á þingfundi sem lauk skömmu fyrir ellefu í gærkvöld. 23 þingmenn eru á mælendaskrá. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögunni.RÚV / Ragnar Visage