Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íbúar Gaza óttast að stríðið berist til þeirra

Þótt vopnahlé eigi að heita í gildi á Gaza hefur Ísraelsher drepið þónokkuð marga íbúa Gaza síðan í október, bæði vígamenn Hamas og almenna borgara.Íbúar óttast að með stríði Ísraels gegn Íran og Hezbollah í Líbanon, finni þeir ástæðu til að hefja aftur þungan hernað á Gaza.Stríðið hefur þegar haft þau áhrif á svæðið að þangað berst minni neyðaraðstoð en áður. Þá kemst fólk síður til útlanda í flóknari skurðaðgerðir, sem margir þurfa í eftir hernað Ísraela.Ramadan-hátíðin stendur enn yfir og múslimar um allan heim fasta milli sólarupprásar og sólseturs. Þeir sem geta boðið fjölskyldum sínum upp á kræsilega iftar-máltíð við sólarlag eru heppnir. Að geta það í húsi sem enn stendur – það er eins og að vinna í lottóinu.
Íbúar Gaza óttast að stríðið berist til þeirra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta