Það blæs um landsmenn framan af en versta veðrið verður líklega á norðanveðrum Vestfjörðum í kvöld þegar gengur í hvassa norðaustanátt með snjókomu eða slyddu.Víða er hálka á vegum og Vegagerðin vekur sérstaka athygli á því að flughált er í brekkunni niður í Jökuldal af Hárekstaðaleið. Þó er bíll á leiðinni þangað að hálkuverja. Snjóþekja er á Fjarðarheiði og Bröttubrekku.Veðurhorfur á landinu til miðnættis í kvöld:Suðvestanátt, víða átta til þrettán metrar á sekúndu og skúrir eða slydduél í dag, en að mestu þurrt norðaustantil. Hægari og stöku skúrir seinnipartinn, en gengur í norðaustan tíu til átján með snjókomu eða slyddu á norðanverðum Vestfjörðum. Hiti frá frostmarki að sex stigum en kólnar í kvöld.Norðlæg eða breytileg átt, átta til fimmtán, á morgun og snjókoma eða slydda, en hægar