Ástralía hefur veitt fimm leikmönnum íranska kvennalandsliðsins í fótbolta vegabréfsáritun í mannúðarskyni eftir að liðið féll úr leik í Asíukeppninni.Fimm liðsmönnum íranska kvennalandsliðsins í fótbolta hefur verið veitt skjól í Ástralíu.EPA / DAVE HUNTForsætisráðherrann Anthony Albanese sagði málið hafa verið í undirbúningi um hríð. Leikmennirnir geta búið í landinu, unnið og stundað nám. Konurnar áttu að halda heim en óttaðist var um öryggi þeirra því þær tóku ekki undir þjóðsönginn fyrir leik gegn Suður-Kóreu.Það vakti talsverða reiði heima fyrir, þær voru kallaðar svikarar sem ættu að hljóta þunga refsingu. Tony Burke, ráðherra innflytjenda, segir konurnar komnar í öruggt skjól. Öðrum leikmönnum hefði einnig verið boðin vist í Ástralíu.