Nýliðinn febrúar var sá fimmti heitasti á heimsvísu frá því mælingar hófust og einkenndist af öfgum með úrhellisrigningum og flóðum í vesturhluta Evrópu.Kóperníkus, loftslagsstofnun Evrópu, segir hitastig jarðar í síðasta mánuði hafa verið 13,26 gráður eða 1,49 gráðum hærra en fyrir iðnbyltingu, örlítið fyrir neðan markmið Parísarsáttmálans. Það er tímabilið 1850 til 1900, áður en stórfelld jarðefnaeldsneytisnotkun tók að valda loftslagsbreytingum.Meðalhitastigið í Evrópu var 0,07 gráðum undir frostmarki þannig að mánuðurinn er meðal þeirra þriggja köldustu í álfunni síðustu fjórtán ár.Kaldast var í hluta Rússlands, Finnlandi, Skandinavíu og Eystrasaltslöndunum en vestar og sunnar í Evrópu var hitinn yfir meðallagi. Vætusamara var en að meðaltali vestan- og sunnanvert í Evrópu en að mestu