Til snarpra orðaskipta kom í Silfri gærkvöldsins þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins staðhæfði að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði verið að véla um inngöngu Íslands í Evrópusambandið á nokkrum fundum í Brussel.Sigmundur sagði allt sem ríkisstjórnin hefði gert bendi til að þjóðinni sé ekki treyst. Þorgerður þvertók fyrir það.„Hvers vegna varstu að plotta með samherjum þínum í Brussel mánuð eftir mánuð eftir mánuð?“ spurði Sigmundur. Þá spurði Þorgerður á móti hvað Sigmundur væri að saka hana um. „Hvað ertu að saka mig um? Hvað ertu að saka mig um? Ertu að saka mig um að fara á bak við íslensku þjóðina? Ertu að segja það?“„Að fara á bakvið nei, ég er ekki að segja svíkja hana en fara á bak við hana, já.“ Þá sagði Þorgerður einfaldlega nei. Sigmundur