Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir engin fordæmi fyrir þeirri leið sem Ísland hyggist fara í átt að Evrópusambandinu.Hún segir samningsstöðu Íslands almennt góða, en þó þurfi að vanda til verka ef til samningaviðræðna komi.Að sögn Vilborgar er venjan sú að ríki sæki fyrst um aðild og kjósi um samninginn í framhaldi af því. Hún segir að grundvöllur viðræðnanna sé sá sami og í síðustu viðræðum, en þó hafi margar breytingar átt sér stað í alþjóðamálum undanfarin tíu ár. VIÐBRÖGÐ VIÐ BREYTTRI HEIMSMYND „Heimurinn er að breytast,“ segir Vilborg og bætir við að meginbreytingarnar sem hafi átt sér stað sé útganga Bretlands úr ESB.„En annað er einfaldlega viðbrögð við breyttri heimsmynd, breyttum aðstæðum, efnahagslega, hernaðarlega og nú auðvitað síðast breytingar á uta