Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hráolíuverð lækkaði um nærri 6% eftir yfirlýsingu Trumps

Verð á hráolíu lækkaði um næstum sex af hundraði á Bandaríkjamarkaði eftir óvænta yfirlýsingu Donalds Trump forseta um að stríðinu gegn Íran lyki senn. Eldneytisverð af dælu hefur hækkað talsvert frá því stríðið hófst í Mið-Austurlöndum.AP / Julio CortezÁ ellefta tímanum í kvöld var tunnan af West Texas Intermediate komin niður í rúma 89 bandaríkjadali á tunnuna eftir að hafa farið yfir 119 dali fyrr í dag. Verð Brent-Norðursjávarolíu var svipað, áður en það lækkaði einnig. Olíuverð hefur sveiflast talsvert frá upphafi átakanna fyrir rúmri viku af ótta við eldsneytisskort.
Hráolíuverð lækkaði um nærri 6% eftir yfirlýsingu Trumps

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta