Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að stríði Bandaríkjanna og Ísraels við Íran muni ljúka „nokkuð fljótlega.“ Hann bætir við að Bandaríkin hafi enn ekki náð fullnaðarsigri.Á blaðamannafundi í kvöld sagði Trump að átökin væru nánast yfirstaðin og að hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna væru „á undan áætlun.“ FYLGIST GRANNT MEÐ STÖÐU OLÍUFLUTNINGA Trump sagði einnig að ef átökin blossuðu upp að nýju yrði brugðist við þeim af enn meiri hörku. Hann hótaði jafnframt harðari árásum gegn Íran ef stjórnvöld þar í landi reyndu að hindra olíuflutninga.„Ég mun ekki leyfa hryðjuverkastjórn að halda heiminum í gíslingu og reyna að stöðva olíuframboð heimsins,“ sagði Trump.„Og ef Íran gerir eitthvað á þá leið munum við ráðast á þá af miklu, miklu meiri krafti.“ SPURÐUR UM LEIÐTOGAVAL ÍRANA Á blaðamann