Fimm núverandi og fyrrverandi embættismenn í Sviss hafa bæst á lista saksóknara þar í landi vegna rannsóknar eldsvoða á bar í Crans-Montana á nýársdag.41 létust í eldsvoðanum og voru flest fórnarlambanna ungmenni. 115 slösuðust og 58 eru enn á sjúkrahúsi.Samkvæmt heimildum AFP er Nicolas Feraud, borgarstjóri sveitarfélagsins, á meðal þeirra sem lögregla rannsakar, auk fyrrverandi bæjarfulltrúa sem hafði umsjón með öryggismálum á svæðinu. ALLS NÍU MANNS UNDIR RANNSÓKN LÖGREGLU Rannsókn málsins beinist meðal annars að því hvort öryggisreglum hafi verið framfylgt á barnum, en í kjölfar brunans kom í ljós að engin árleg öryggisskoðun hafði verið framkvæmd á staðnum síðan árið 2019.Alls eru því níu manns til rannsóknar vegna eldsvoðans sem átti sér stað á barnum Le Constellation aðfaranótt 1