Oddviti Kaldrananeshrepps segir sameiningu við Árneshrepp geta aukið lífskjör íbúa á svæðinu. Kosið verður um sameiningu sveitarfélaganna tveggja á næstu vikum. ÍBÚAR ÁHYGGJUFULLIR YFIR AÐ MISSA ÞJÓNUSTU OG STÖRF Íbúar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps, tveggja af fimm fámennustu sveitarfélögum landsins, funduðu með samstarfsnefnd í dag vegna fyrirhugaðra kosninga um sameiningu.Íbúafundur í Árneshreppi stóð yfir í á þriðja tíma. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður, var í beinni útsendingu frá Drangsnesi í kvöldfréttum sjónvarps. Hún sagði að íbúar hefðu spurt fjölda spurninga um kosti og galla sameiningar.Margir hefðu viðrað áhyggjur sínar af því að missa þjónustu, störf og völd yfir nærumhverfi sínu til stærsta þéttbýliskjarnans Drangsnes sem nú er í Kaldrananeshreppi.Finnur Ólafss