Forstöðumaður hjá Íslandssjóðum óttast að áframhaldandi lokun Hormússunds milli Persaflóa og Ómanflóa verði til þess að olíuverð haldi áfram að hækka. Um tuttugu prósent af olíu heimsins er flutt um sundið. LOKUN HORMÚSSUNDS HAFT MIKIL ÁHRIF Heimsmarkaðsverð hráolíu hefur náð nýjum hæðum eftir að stríð hófst í Mið-Austurlöndum í þarsíðustu viku, en tunnan fór yfir hundrað dollara í dag. Hækkunin hefur þegar haft áhrif hér á landi – eldsneyti hefur hækkað víða um nokkrar krónur síðustu daga.Brynjólfur Stefánsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslandssjóðum, segir lokun Hormússunds, mikilvægrar siglingaleiðar milli Persaflóa og Ómanflóa, í síðustu viku þegar hafa haft mikil áhrif. Um fimmtungur af olíu heimsins er flutt um sundið. > „Þetta hefur náttúrulega verið helsta vopn Í