Netkerfisfræðingurinn og varabæjarfulltrúinn Ólafur Ingi Óskarsson er nýr oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.Framboðslisti flokksins var samþykktur í heild sinni á félagsfundi síðdegis í dag.Annað sæti listans skipar Guðný Maja Riba, kennari og fráfarandi borgarfulltrúi. Í þriðja sæti er Ómar Ingþórsson, landslagsarkitekt og náttúrufræðingur.„Það er mér mikill heiður að vera fyrirliði í svo flottu liði. En það er líka eins gott að Samfylkingin mæti sterk til leiks því það er mikið undir,“ er haft eftir Ólafi Inga, nýkjörnum oddvita, í fréttatilkynningu uppstillingarnefndar. Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ í heild sinni: 1. Ólafur Ingi Óskarsson, netkerfisfræðingur og formaður velferðanefndar 2. Guðný Maja Riba, kennari og fráfarandi borgarfulltrúi 3. Ómar Ingþórsson,