Bylgja vasaþjófnaðar gekk yfir landið í fyrra og náði hámarki í sumar. Þjófarnir létu greipar sópa á vinsælum ferðamannastöðum, aðallega í Reykjavík og á Suðurlandi. Oftast voru það erlendir ferðamenn sem urðu fyrir barðinu á þessum þjófum.Á síðustu dögum hefur tilfellum farið fjölgandi á ný aðallega við Hallgrímskirkju, Skólavörðustíg og Laugaveg.„Við erum að vara við þessum þjófum sem eru núna á ferðinni. Þetta eru tíu tilfelli síðustu daga, frá 5. mars,“ segir Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Enginn hefur verið handtekinn en lögreglan telur líklegast að þetta séu erlendir þjófar. Dæmi eru um að fólk hafi komið hingað til lands gagngert í þeim tilgangi að stunda hvers konar þjófnað. Þeir steli peningum, greiðslukortum og öðrum lausum hlutum eins og