Hitastigið var hátt á Alþingi í dag þegar utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu sinni um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þingmenn sökuðu ráðherra meðal annars um að hafa brotið lög og um samráð við embættismenn í Brussel. Evrópumálið er komið á dagskrá og við gerum upp viðburðaríkan dag á Alþingi í kvöldfréttum.