Rúmlega þrítugur franskur forritari segist hafa óvart hakkað sig inn í þúsundir ryksuguróbóta og þannig náð stjórn á þeim. Hann hafi aðeins ætlað sér að stýra sínum róbóta með PlayStation-fjarstýringu en náð í leiðinni fjaraðgangi að sjö þúsund öðrum tækjum. Atvikið hefur vakið athygli á hugsanlegum öryggisgalla í snjalltækjum á heimilum. Framleiðandi ryksuguróbótanna, kínverska fyrirtækið DJI, segist hafa gert viðeigandi breytingar til að loka fyrir þennan öryggisgalla. VILDI LÁTA RYKSUGUNA GEFA FRÁ SÉR GRÁT ÞEGAR RAFHLAÐAN VAR NÆRRI TÓM Forritarinn, sem heitir Sammy Azdoufal, segist hafa af einskærri forvitni reynt að laga róbótann sinn að sínum þörfum. Framleiðandinn bjóði upp á smáforrit, app, fyrir notendur róbótanna og hann hafi viljað skilja hvaða skilaboð forritið væri að senda