Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ég vildi sýna hvernig barni líður við þessar aðstæður“

Nanna Rögnvaldardóttir er hvað þekktust fyrir matreiðslubækur en hefur síðustu ár rutt sér til rúms með skáldsögum. Í fyrra kom út hennar fyrsta barnabók, Flóttinn á norðurhjarann, sem hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. Bókin fjallar um flótta mæðgna um kaldan vetur eftir móðuharðindin. EKKI TILBÚIN AÐ SETJAST Í HELGAN STEIN Á EFTIRLAUNAÁRUNUM Þegar Nanna fór á eftirlaun vissi hún að hana langaði ekki bara til að spila og prjóna. Hana langaði að skrifa en vissi ekki alveg hvað.Hún byrjaði að skrifa sögu formóður sinnar sem átti merkilega ævi. Upphaflega átti sagan ekki að vera skáldsaga en varð það að lokum. > Og þá fannst mér þetta svo gaman að ég ákvað að halda bara áfram að skrifa skáldsögur.“ Fyrsta skáldsaga Nönnu var Valskan, svo komu glæpasögurnar Þegar sannleikurinn
„Ég vildi sýna hvernig barni líður við þessar aðstæður“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta