Piltur og stúlka á táningsaldri hafa verið handtekin á Nýja-Sjálandi eftir að bakpoki sem þau skildu eftir fyrir utan nytjamarkað reyndist innihalda kannabis og seðlabúnt.Sterk lykt sem barst úr bakpokanum, sem skilinn hafði verið eftir á sérstöku söfnunarsvæði, vakti athygli sjálfboðaliða sem vinnur á nytjamarkaðinum. Í ljós kom að í bakpokanum var fjöldi lítilla plastpoka sem samtals innihéldu 43,2 grömm af marijúana. Þar leyndust einnig 3.700 nýsjálenskir dollarar, eða tæplega 280 þúsund krónur.Lögreglan segir að unglingarnir hafi komið hlaupandi í átt að nytjamarkaðinum, sýnilega í uppnámi, ekki löngu eftir að þau skildu bakpokann þar eftir.Í frétt BBC segir að lögregluyfirvöld hafi ekki sent frá sér neinar upplýsingar um hvort ungmennin hafi verið ákærð eða dregin fyrir dóm. Þar gilda