Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot sem framið var aðfaranótt sunnudags. DV greinir frá og segir brotin hafa verið framin á hóteli í miðbæ Akureyrar.Skarphéðinn Aðalsteinsson, yfirmaður rannsóknardeildar, staðfestir í samtali við fréttastofu að lögreglan hafi málið til rannsóknar og að fleiri en einn hafi stöðu sakbornings vegna rannsóknarinnar.Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar meint brot.RÚV / Kristófer Óli Birkisson