Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Nýtt bæjarmálafélag býður fram í Bolungarvík

Nýtt bæjarmálafélag, Betri Bolungarvík, hefur hafið undirbúning framboðs fyrir sveitarstjórnarkosningar. Á stofnfundi í síðustu viku var Þorsteinn Másson kosinn formaður félagsins og með honum í stjórn Hulda Birna Albertsdóttir og Guðmundur Kristinn Albertsson.Á vef félagsins segir að framboðið sé sprottið af vilja íbúa til að taka virkan þátt í mótun samfélagsins. Í frétt Bæjarins besta segir að framboðið sé án tengsla við stjórnmálaflokka.Baldur Smári Einarsson var fundarstjóri á stofnfundi Betri Bolungarvíkur. Hann sat í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn samfleytt í 17 ár, allt til 2023.
Nýtt bæjarmálafélag býður fram í Bolungarvík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta