Jens Stoltenberg fjármálaráðherra Noregs boðaði í dag niðurskurð í ríkisútgjöldum. Hann sagði að staða Noregs væri góð en engu að síður þyrfti að sýna ábyrgð í ríkisrekstri, sérstaklega í ríkjandi óvissuástandi í alþjóðamálum. Norska ríkisútvarpið, NRK, segir frá.Stoltenberg lét hins vegar ekkert uppi um hvar yrði skorið niður. Nánari útfærsla kæmi í ljós í haust þegar fjárlög væru kynnt.Hins vegar lægi fyrir að lýðfræðilegar breytingar, til dæmis á aldurssamsetningu þjóðarinnar, kæmu til með að þyngja róður ríkisins, sem og útgjöld til öryggismála. NOREGUR EKKI AÐ HAGNAST Á AFLEIÐINGUM STRÍÐSÁTAKA Stoltenberg sagði á blaðamannafundi í morgun að fullsnemmt væri að spá um hvaða áhrif stríðsátök í Mið-Austurlöndum hafi á norskan efnahag. Hann undirstrikar þó að Noregur sé lítið og opið ha