Forstjóri Sjúkratrygginga segir að enn séu óvissuatriði um opnun hjúkrunarrýma hjá Klíníkinni. Samningaviðræður Sjúkratrygginga Íslands og Klíníkurinnar hafa staðið í nokkrar vikur. Sigurður H. Helgason, forstjóri SÍ, segir að það gæti farið að skýrast á næstu dögum í hvaða átt stefnir. Best sé að segja sem minnst á þessum tímapunkti.Hann segir að verið sé að skoða ólíka valkosti um mögulega nýtingu rýmanna. Náist samningar muni taka tíma að koma starfseminni af stað.Opnun tíu til tuttugu hjúkrunarrýma hjá Klíníkinni er meðal aðgerða sem heilbrigðisráðherra boðaði eftir krísufund starfsfólks bráðamóttökunnar í febrúar.Þá er lokafrágangur á 100 nýjum hjúkrunarrýmum í Urðarhvarfi í fullum gangi. Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar sem rekur rýmin, segir stefnt að því að fyrstu íbúar