Í Þetta helst í dag er sjónum beint að ört vaxandi gagnaversiðnaði hér á landi. Á föstudaginn var fjallað um söluna á íslenska gagnaversfyrirtækinu atNorth, sem selt var fyrir um 485 milljarða króna um síðustu mánaðamót. Verðmæti fyrirtækisins hafði tífaldast á fjórum árum.Tekjur aukast og störfum fjölgar verulega í gagnaversiðnaði hér á landi. Formaður Samtaka gagnavera segir stjórnvöld þurfa að marka skýra stefnu um atvinnugreinina.Í drögum forsætisráðuneytisins að atvinnustefnu Íslands til 2035 er nokkur áhersla lögð á gagnaverin. Þar segir að leggja eigi áherslu á mikil vaxtartækifæri í gagnaversiðnaði, sem falli vel að markmiðum atvinnustefnunnar um aukinn og fjölbreyttari útflutning sem byggist á atvinnugreinum með mikla framleiðni.Í stefnunni er nefnt að alþjóðleg eftirspurn eftir þ