Rapparinn og tónlistarkonan Ragna Kjartansdóttir eða Cell7 byrjaði sinn feril með hljómsveitinni Subterranean sem sendi frá sér plötuna Central Magnetizm árið 1997. Platan er ein af fyrstu rappplötum sem komu út á Íslandi og þótti vel heppnuð. Síðar sendi hún frá sér sólóplöturnar Cellf árið 2013, Is Is árið 2019 sem fékk íslensku tónlistarverðlaunin.Deep Cuts er nýjasta platan og kom út í október en titillinn vísar til þess að á plötunni séu lög sem eru ekki endilega hugsuð sem vinsældarvænir hittarar heldur er meira hugsað um listrænt gildi innan senunnar. Platan er að sögn Rögnu lífræn og sækir innblástur í sál, fönk og jazz-skotið hiphopp án þess að missa sjónar á framtíðinni með okkar færustu framleiðendum.Ragna Kjartansdóttir ræddi plötu vikunnar á Rás 2 við Atla Má Steinarsson.