Bubbi Morthens fagnar sjötugsafmæli 6. júní með síðustu stórtónleikum ferilsins. RÚV gerir sjónvarpsþætti í tilefni afmælisins um bestu lög Bubba.Að þáttunum standa Gunnlaugur Jónsson og Þór Freysson sem ætla að telja niður 15 vinsælustu lög Bubba að mati þjóðarinnar og þurfa því á liðsinni hennar að halda. „Bubbi og fjölmargir viðmælendur rifja upp lögin og helstu tímabil á löngum ferli hans. Við erum þessa dagana að grafa upp gríðarlegt magn af Bubba-efni úr safni RÚV og einnig verður sýnt efni sem ekki hefur sést lengi,“ segir Gunnlaugur.Taktu þátt í valinu með því að velja allt að fimm lög í kosningunni hér fyrir neðan.