Áhugi á golfi virðist takmarkalaus með öllu. Golfforystan leggur allt í að draga alla og ömmu þeirra í golf og sú virðist nú raunin. Flestir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru hvellsprungnir, þar er uppselt, langir biðlistar hafa myndast og verðið fylgir eftirspurninni.