Ólöf Helga Haraldsdóttir var á göngu í fjörunni á Eyrarbakka þegar hún rak augun í lóu sem rölti um í túnkambinum.Lóan er í fyrra fallinu í ár; í fyrra sást fyrst til hennar þann 22. mars. Jóhann Óli Hilmarsson, fuglafræðingur, segir að snemmkomu lóunnar megi rekja til hlýnandi loftslags, með árunum hafi hún yfirleitt verið að flýta komu sinni enn frekar.Jóhann segir að enn fleiri fuglar hafi verið að venja komu sína fyrr til landsins, til að mynda sé tjaldurinn einnig farinn að láta sá sig. > „Þó það sé kuldalegt núna að þá kemur vorið vonandi einhvern tíman.“ Jóhann segir að yfirleitt sjáist fyrst til lóunnar á Suðurströndinni og oft verði keppni milli manna um það hver verði fyrstur til þess að berja hana augum. Ólöf Helga sá hana fyrst í ár og segir Jóhann hana vera komna af miklum f