Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson eru rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Þeir deila reynslu sinni í sýningunni Gæðablóð sem frumsýnd verður í Þjóðleikhúsinu í vikunni. Unnsteinn sat í sófanum í Vikunni með Gísla Marteini og frumflutti svo lagið Bergnuminn, sem er í sýningunni.