Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Netverslanir á landsbyggð kalla eftir samkeppni í póstflutningum

Netverslanir á landsbyggðinni geta illa nýtt sér samkeppni í póstflutningum og vildu gjarnan senda vörur með fyrirtækjum sem bjóða ódýrari sendingar. Kona sem framleiðir skartgripi á Eskifirði getur ekki verið með lagerinn þar vegna þess hve mikið kostar að senda með Póstinum.Verslun hefur mikið færst yfir á netið og sagt er að ef verslanir á landsbyggðinni vilji lifa af verði þær að setja upp vefverslun líka. Þá eru margir smáframleiðendur háðir því að selja vörurnar beint á netinu.„Ég er búin að búa á Eskifirði núna í 8-9 mánuði og var áður á höfuðborgarsvæðinu og var búin að reka netverslunina þaðan. Það kom mér mjög á óvart að það er eingöngu í boði að senda með þjónustu póstsins. Ég get ekki notað til dæmis þjónustu Dropp sem skiptir okkur mjög miklu máli vegna þess að ég hef séð það
Netverslanir á landsbyggð kalla eftir samkeppni í póstflutningum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta