Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur í öryggisskyni skipað því starfsfólki sem ekki sinnir brýnustu starfsskyldum og fjölskyldum þess að yfirgefa sendiráð landsins í Sádi Arabíu. Íranir hafa ítrekað gert árásir á Sádi Arabíu í hefndarskyni fyrir atlögur herja Bandaríkjanna og Ísraels.Bandaríkjastjórn hafði áður heimilað brotthvarf starfsfólksins eftir drónaárás á sendiráðið í liðinni viku. Íranir hafa einnig gert drónaárásir á sendiráðin í Kúveit og Sameinuðu arabísku furstadæmunum.Utanríkisráðuneytið hvetur Bandaríkjamenn til að draga úr ferðalögum til Sádi Arabíu en kveðst ekki vilja banna allar ferðir þangað, enda mikilvægur áfangastaður bandarískra kaupsýslu- og stjórnmálamanna.Konungdæmin við Persaflóa eru miklir samherjar Bandaríkjanna og í Barein og Katar eru stórar bandarískar he