Vopnainnflutningur til ríkja Evrópu hefur margfaldast á þessum áratug eftir því sem segir í nýrri skýrslu Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofunnar í Stokkhólmi, SIPRI.Úkraínskur hermaður. Mjög mikið er flutt af vopnum til Úkraínu vegna innrásarstríðsins.EPA / TOMMASO FUMAGALLIÁ árunum 2021 til 2025 hefur innflutningurinn aukist um 210 af hundraði samanborið við fimm ára tímabil þar á undan. Aukningin er fyrst og fremst rakin til innrásarstríðs Rússa í Úkraínu. Rekja má 9,7 prósent vopnainnflutnings veraldar til Úkraínu en önnur ríki Evrópu hafa einnig aukið vopnakaup verulega.