Íranir skutu eldflaugum í átt að Ísrael í nótt, þeim fyrstu eftir að sérfræðingaráðið útnefndi Mojtaba Khamenei nýjan æðstaklerk. Ríkisfréttastöðin IRIB greindi frá þessu og birti ljósmynd af skotflaug sem bar áletrunina „Að þinni skipan, Sayyid Mojtaba.“Loftvarnarflautur ómuðu víða um Ísrael, meðal annars í stórborgunum Tel Aviv og Haifa, að sögn hermálayfirvalda. Heyra má konur syngja mótmælasöng á persnesku þar sem nýjum æðsta leiðtoga Írans er óskað dauða í stuttu myndskeiði sem birtist á samfélagsmiðlum í gærkvöld.AFP-fréttaveitan segist hvorki geta greint hvar í Teheran myndskeiðið var tekið upp né hvort svipað andóf hafi verið viðhaft víðar um borgina. Í gær víða um heim var efnt til mótmæla gegn stríðinu í Mið-Austurlöndum í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna.Emmanuel Macron Fra