Tugum lestarferða frá fjölförnustu lestarstöð Skotlands hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna mikils eldsvoða í fjögurra hæða byggingu nærri aðallestarstöðinni í Glasgow. Slökkviliðsmenn að störfum í Glasgow. Mynd úr safni.EPA / ROBERT PERRYEngan virðist hafa sakað í eldsvoðanum. Byggingin sem var byggð 1851 stendur við Unionstreet er að hluta til hrunin og lestarfélagið Network Rail segir að stöðin verði ekki opnuð í fyrramálið. Það hvetur farþega til að finna annan ferðamáta og boðar frekari upplýsingar um leið og hægt sé. John Swinney, fyrsti ráðherra Skotlands, kveðst uggandi yfir eldsvoðanum, þakkar slökkviliði sín störf og hvetur almenning til að fylgja ferðaleiðbeiningum og halda sig fjarri.